09.02.1928
Neðri deild: 18. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í D-deild Alþingistíðinda. (2268)

67. mál, endurskoðun fátækralaganna

Flm. (Halldór Stefánsson):

Þetta mál, eins og það liggur fyrir, er ekki þess eðlis, að hjer eigi að taka nokkra úrslitaályktun um neitt fyrirkomulagsatriði, og virðist mjer því ekki þörf á að vísa því til nefndar á þessu stigi. Þó vil jeg ekki gera það að neinu ágreiningsatriði fyrir mitt leyti, ef meiri hl. deildarinnar kynni að óska þess. En verði því vísað í nefnd, vil jeg leyfa mjer að mælast til þess við þá nefnd, að hún leggist ekki á málið.