02.02.1928
Efri deild: 12. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2907 í B-deild Alþingistíðinda. (2661)

35. mál, lokunartími sölubúða

Frsm. meiri hl. (Jón Baldvinsson):

Nefndin hefir ekki orðið sammála um þetta frv., og er það till. okkar meiri hl., að frv. verði samþ.

Það er engin deila um formið á sjálfu frv. og ekki heldur um orðalag þess; það er aðeins stefnuatriði, sem deilt er um í þessu máli. En þar sem það hefir verið rætt ekki einungis á þessu þingi, heldur á fjórum undanförnum þingum, þá hygg jeg, að ekki þurfi langar ræður um það nú. Jeg mun því aðeins halda mjer að þeirri tillögu, sem meiri hl. hefir gert, og mun ekki taka til máls aftur, nema sjerstakt tilefni gefist.