24.02.1928
Neðri deild: 31. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2941 í B-deild Alþingistíðinda. (2728)

52. mál, löggilding verslunarstaða

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Fyrir nefndinni lágu 2 frv. um þetta efni, og þótti nefndinni því rjettara að sameina þau bæði, en láta ekki tvenn lög koma frá sama þingi um sama efni. Vonast jeg til, að hv. 1. þm. S.-M. Sætti sig við þá meðferð, er frv. hans hefir fengið af hálfu nefndarinnar, og telji sig hafa fengið vilja sínum framgengt, þótt frv. hans hafi verið felt inn í hitt frv. í því skyni að spara kostnað og fyrirhöfn.