22.03.1928
Efri deild: 54. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3246 í B-deild Alþingistíðinda. (3031)

83. mál, hafnarlög fyrir Vestmannaeyjar

Frsm. (Erlingur Friðjónsson):

Jeg var búinn að gleyma, að jeg væri frsm., en það mun hafa stafað af því, hve einhuga nefndin var um að leggja með frv., að það væri samþ. óbreytt. Fyrst engar brtt. liggja fyrir, lítur út fyrir, að allir sjeu sammála um málið. Sje jeg því ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri.