12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4659 í B-deild Alþingistíðinda. (3902)

103. mál, Landsbanki Íslands

Frsm. annars minni hl. (Ólafur Thors):

Jeg tek undir það, að það eru algerð öfugmæli hjá hv. frsm. meiri hl., að við sjeum tveir um eitt nál. Það voru tvö nál., og þau ólík. En jeg skil nú, að hann vill ekki tala um málið, af því að hann hefir ekki hirt um að lesa nál.