06.03.1928
Neðri deild: 40. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1953 í B-deild Alþingistíðinda. (960)

29. mál, jarðræktarlög

Bjarni Ásgeirsson:

Jeg vil aðeins geta þess, að það er alveg rjett, sem hv. frsm. sagði, að samkomulag hefir orðið á milli okkar, sem stöndum að brtt. á þskj. 384, um að falla frá henni; ef samþ. verður brtt. á þskj. 393. Af þessum ástæðum ætla jeg ekki að fara frekar út í þær umr., sem orðið hafa um þetta mál, en get lýst yfir því, að ef brtt. á þskj. 393 verður samþ., tökum við aftur brtt. á þskj. 384.