20.02.1929
Neðri deild: 3. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í B-deild Alþingistíðinda. (212)

17. mál, eftirlit með skipum og bátum

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg er búinn að segja frá því, hver er mín hugsun í þessu máli. Mjer þótti hlýða að bera frv. fram, en jeg skal játa, að í því annríki, sem jeg hefi átt þessar síðustu vikur, hefi jeg ekki haft tíma til að hugsa hvert einstakt atriði út í æsar.