20.04.1929
Neðri deild: 50. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í C-deild Alþingistíðinda. (2713)

1. mál, lánsfélög

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Það komu fram 2 brtt. við nafnið á Landbúnaðarbankanum, og þetta er önnur brtt. við nafnið á þessu frv. Mjer er í rauninni alveg sama, hvort nafnið verður tekið, en þegar frv. er komið til hv. Ed., þá mun jeg reyna að koma upprunalegu nöfnunum á þessar stofnanir, því að Landbúnaðarbanki og Sveitabanki eru langsamlega fallegustu nöfnin.