09.04.1929
Efri deild: 40. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í C-deild Alþingistíðinda. (2825)

26. mál, kvikmyndir og kvikmyndahús

Jón Baldvinsson:

Jeg var að hugsa um að bera fram þá brtt. við frv., að með því fjellu úr gildi öll eldri leyfi til kvikmyndasýninga. En við nánari lestur frv. sá jeg, að þessa þarf ekki með. Því jeg skil frv. svo, að framvegis verði allir að sækja um leyfi til dómsmálaráðherra, hvort sem þeir hafa gömul leyfi eða ekki. Því ætla jeg ekki að flytja þessa brtt.