05.04.1929
Neðri deild: 37. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1612 í C-deild Alþingistíðinda. (3207)

113. mál, ábúðarlög

Pjetur Ottesen:

Mjer finst það undarlegt, þar sem hjer er um mjög stóran lagabálk að ræða, ef ekki á að sýna málinu þann sóma að reifa það. Jeg hefi lítillega kynt mjer frv. og mjer dylst ekki, að fjölmörg ákvæði þess eru þess efnis, að full ástæða er til að taka þau til gaumgæfilegrar athugunar.