16.05.1929
Neðri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í D-deild Alþingistíðinda. (3742)

100. mál, rýmkun landhelginnar

Sigurður Eggerz:

Jeg vil aðeins lýsa ánægju minni yfir því, hvað hv. þm. Borgf. hefir bæði nú og áður lagt mikla áherslu á þetta mál. Það er eitt af þeim málum, sem miklir örðugleikar eru á að bera fram til sigurs og vinst því aðeins, að því sje altaf haldið vakandi. Jeg mun því með ánægju greiða þáltill. mitt atkv.