07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1711 í B-deild Alþingistíðinda. (2352)

238. mál, útvarp

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Málaskráin ber það með sér, að þessu máli hefir verið vísað til fjhn. fyrir meira en þrem vikum síðan. Það er alveg óafsakanlegt hjá hv. minni hl. að hafa ekki skilað nál. Verð ég því að skilja það svo, að þessi tilraun þeirra sé aðeins til þess gerð að draga málið. Þess vegna vil ég enn beina þeirri áskorun til hæstv. forseta, að hann taki málið nú þegar til umr.