18.03.1930
Neðri deild: 56. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í C-deild Alþingistíðinda. (584)

114. mál, Brunabótafélag Íslands

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Það er rétt, sem hv. þm. Dal. gat um, að stj. hefir borizt frv. frá Brynjólfi Stefánssyni. En það varð ekki fyrr en alveg nýlega, löngu eftir að þetta frv. var lagt hér fram, og ég held eftir að fjhn. hafði skilað áliti sínu. Ég vona, að frv. geti komizt til n. í dag eða á morgun.