26.02.1930
Neðri deild: 37. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2460 í B-deild Alþingistíðinda. (715)

Þingvíti

Halldór Stefánsson:

Þar sem hæstv. forseti hefir tekið hvorug tilmæli mín til greina, hvorki þau, að leysa hv. 2. þm. Rang. úr þingvítum, né að bera þau undir deildina, hvort hann skuli leystur úr þeim, verð ég að líta svo á, sem þessari ströngu reglu um þingvíti verði framvegis alltaf fylgt, er einhvern vantar á fund. Og um það mun ég ekki fást.