28.03.1931
Neðri deild: 36. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í C-deild Alþingistíðinda. (1601)

62. mál, rekstrarlánafélög fyrir bátaútveg og smáiðju

Sveinn Ólafsson:

Út af ræðu hv. þm. Vestm. — þó efni hennar væri utan dagskrár — vildi ég geta þess, að minni hl. sjútvn. hefir enn ekki samið nál. um þetta frv. Veldur það drætti þessum, að stofnanir, sem minni hl. hefir leitað til um upplýsingar, hafa ekki ennþá gefið þær. Þó býst ég við, að þær fáist mjög bráðlega og að minni hl. n. geti lagt fram álit sitt ekki síðar en á mánudag, og mun þá verða afgr. álitið, þó svör verði ekki komin frá umgetnum stofnunum.