23.02.1931
Neðri deild: 7. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í C-deild Alþingistíðinda. (805)

18. mál, samgöngubætur og fyrirhleðslur á vatnasvæði Þverár og Markarfljóts

Sigurður Eggerz:

Ég hefi aldrei mótmælt því, að hæstv. stj. hafi ráðfært sig við einhverja kjósendur um þessi mal. En af svörum stj. mjög óljósum í þessu máli virðist mér auðsætt, að hér sé verið að búa til kosningabeitu, sem búizt sé við, að verði gómsæt.