18.02.1931
Neðri deild: 3. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í C-deild Alþingistíðinda. (910)

27. mál, kirkjur

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

mér er ekki kunnugt um, að neinn þm. hafi fengið neitt af mínum stjfrv. Hitt er rétt, að ég sagði hv. 2. þm. Rang. í samtali ágrip af þeim rétt fyrir þingið. En fyrsti maður, sem ég úthlutaði stjfrv., hygg ég hafi verið hv. fyrrv. þm. V.-Sk., sem situr nú hér í blaðamannaherberginu fyrir hönd Morgunblaðsins.