22.08.1931
Efri deild: 39. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1191 í B-deild Alþingistíðinda. (1878)

132. mál, hýsing prestssetra

Frsm. (Magnús Torfason):

Allshn. hefir ekki átt kost á að kynna sér þær till., sem hér liggja fyrir, svo að ég get ekki talað fyrir hennar hönd um málið. En ég vil fyrir mitt leyti leggja til, að brtt. hv. 3. landsk. verði samþ., meðfram af því, að ég óttast, að annars komist málið ekki úr deildinni, en það áliti ég skaða.