11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 674 í B-deild Alþingistíðinda. (420)

3. mál, landsreikningar 1929

Frsm. (Halldór Stefánsson):

Það kemur hér fram sem oft endranær, að það er ekki gott að taka mark á orðum, sem flutt eru á milli. Ég hefi aldrei sagt, að hv. þm. Seyðf. hefði ekki vit á reikningsfærslu. Mín rök gagnvart því, sem hv. þm. sagði, voru án allrar persónulegrar áreitni í hans garð.