27.07.1931
Neðri deild: 13. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í B-deild Alþingistíðinda. (61)

1. mál, fjárlög 1932

Forseti (JörB):

Þar sem senn er komið miðnætti, þykir mér rétt, að hv. dm. skeri úr með atkvgr., hvort fundi skuli haldið áfram. Ég hafði hugsað mér, ef hv. dm. gætu á það fallizt, að hv. frsm. fjvn. talaði nú, en hann gerir ráð fyrir að tala stutt, og síðan yrði fundi slitið. En ég vil eigi að síður bera það undir deildina.