01.03.1932
Neðri deild: 17. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (1018)

50. mál, leyfi til loftferða

Guðbrandur Ísberg:

Sem þdm. vil ég geta þess, að ég er frv. fylgjandi í öllum höfuðatriðum, en þó eru nokkur atriði þess, sem ég hefði æskt breyt. á, en mun þó af ýmsum ástæðum láta bíða að gera grein fyrir þeim breyt. þangað til við 2. umr. málsins.