14.05.1932
Efri deild: 75. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1918 í B-deild Alþingistíðinda. (2111)

555. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Forseti (GÓ):

Þá verður atkvgr. frestað samkv. beiðni, er fram hefir komið. (PH: Ætlar hæstv. forseti að gefa dm. frí?). Ef þess er óskað; ekki stendur á mér. Annars verð ég að taka hv. dm. vara fyrir því meðan fundir standa yfir að vera sem mest inni í deildinni, en ekki þjóta fram og aftur með ys og hurðaskellum.

Á 76. fundi í Ed., 17. maí, var fram haldið 2. umr. um frv.