25.04.1932
Neðri deild: 59. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2294 í B-deild Alþingistíðinda. (2612)

88. mál, einkasala á tóbaki

Frsm. meiri hl. (Steingrímur Steinþórsson):

Ég hefi ekkert annað um mál þetta að segja en það, sem nál. meiri hl. hér með sér. Legg ég því til fyrir hans hönd, að frv. verði samþ. óbreytt. Minni hl. hefir aftur ekki skilað neinu nál. Býst ég því við, að hann geri grein fyrir sinni aðstöðu til málsins.