23.04.1932
Neðri deild: 58. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í C-deild Alþingistíðinda. (3479)

368. mál, skiptalög

Magnús Guðmundsson:

Ég mun ekki ræða þetta mál frekar, en vil aðeins gera það að till. minni, þar sem meiri hl. n. hefir ekki getað fallizt á að taka frv. aftur, að málinu verði vísað til stjórnarinnar til athugunar. Ber stj. þá væntanlega frv. fram á næsta þingi, ef hún sér ástæðu til þess, en ég er ekki í minnsta vafa um það, að hún mun ekki bera fram neitt slíkt frv.