19.03.1932
Neðri deild: 33. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 820 í B-deild Alþingistíðinda. (350)

4. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Brtt. hv. þm. Seyðf. hafa að mestu leyti verið ræddar áður. Ég tel ekki þörf á að ræða um þann smávægilega mun, sem á þeim er frá till. hv. 2. þm. Reykv. Ég tel litlu betra að afgreiða frv. með þessum breyt., heldur en að fella sjálft frv. Óska ég því, að þær verði felldar, eins og ég hefi áður gert.