20.05.1932
Efri deild: 79. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í B-deild Alþingistíðinda. (415)

5. mál, verðtollur

Frsm. meiri hl. (Einar Árnason):

Þar sem ekki getur valdið neinum ágreiningi, að ríkissjóður mun hafa þörf fyrir þær tekjur, sem ætlazt er til, að frv. þetta veiti, þá hefi ég ekki neitt annað að segja fyrir hönd meiri hl. fjhn. en það, að hún leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.