10.05.1932
Efri deild: 71. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 959 í B-deild Alþingistíðinda. (504)

7. mál, lax- og silungsveiði

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil geta þess út af fyrirspurn hv. 2. þm. Árn., að það er augljóst mál, að um Ölfusá upp undir Arnarbæli á við skilgreining frumvarpsins um „leirur“. Þar eiga ekki við ákvæði frv. um kvíslar.