28.04.1932
Efri deild: 62. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1077 í B-deild Alþingistíðinda. (679)

9. mál, brúargerðir

Jón Þorláksson:

Mér er ómögulegt að fylgja hv. 2. þm. Árn. í því að vilja fella brúna á Hvítá úr þessu frv., en ég vil enn sem fyrr styðja hann í því að fá tekna inn brúna á Hvítá, ekki hjá Kiðjabergi, heldur nálægt Kiðjabergi. Ég ætla að leyfa mér, ef forseti vill bera það undir d., að bera fram skrifl. brtt. við brtt. á þskj. 543, sem felur þetta í sér.