06.05.1933
Neðri deild: 67. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (1473)

9. mál, sláttu tveggja minnispeninga

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Ég vil lýsa því yfir f. h. sjútvn., að hún leggur eindregið til, að þessi till. til þál. verði samþ. Ástæðurnar fyrir því er að finna í grg. till. sjálfrar, og með því að n. er að öllu leyti samþykk því, að málið nái fram að ganga og tekur undir það, sem þar er sagt, þykir mér ekki þörf að skýra málið almennt eða fara út í einstök atriði þess.