29.05.1933
Sameinað þing: 7. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í D-deild Alþingistíðinda. (1847)

183. mál, þjóðaratkvæði um aðflutningasbann á áfengum drykkjum

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Í tilefni af fyrirspurn hv. þm. Seyðf. læt ég þess getið, að ef till. verður samþ., þá mun stj. láta fram fara atkvgr. að haustinu (HG: Nú í haust?). Já, og stj. mundi ekki sameina þessa atkvgr. almennum alþingiskosningum. Svo mun verða með þetta farið, nema þingvilji um annað komi í ljós.