28.04.1933
Neðri deild: 60. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1822 í B-deild Alþingistíðinda. (2266)

148. mál, hegningarlöggjöfina

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Ég vil aðeins skýra það, að brtt. á þskj. 468 er borin fram í samráði við mig. Ég held því, að ekkert geri til, þó að hvorugur flm. brtt. sé nú viðstaddur hér í hv. deild.