31.03.1933
Neðri deild: 41. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í B-deild Alþingistíðinda. (233)

1. mál, fjárlög 1934

Frsm. fyrri kafla (Ingólfur Bjarnarson):

Annaðhvort hefi ég ekki tekið það nógu skýrt fram í ræðu minni, er ég gat um afstöðu fjvn. gagnvart þessum styrk til deildar Rauðakrossfél. á Akureyri, eða hæstv. dómsmrh. hefir ekki heyrt það, og líklega ekki verið við látinn. En ég tók það skýrt fram, að fjvn. hefði einhuga mælt með því, að þessi styrkupphæð til Rauðakrossfél. Akureyrar, sem niður hafði fallið, yrði greidd, ef hæstv. stj. sæi það fært. Og nú hefir hæstv. dómsmrh. lýst því yfir, að stj. mundi gera þetta, að fengnum meðmælum fjvn., og þess vegna vildi ég aðeins endurtaka þau.