26.05.1933
Efri deild: 81. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2207 í B-deild Alþingistíðinda. (3425)

167. mál, kreppulánasjóð

Jón Þorláksson [óyfirl.]:

Við 2. umr. málsins lofaði landbn. að athuga til 3. umr. viss atriði í þessu frv., og ég hafði vonazt eftir að sjá brtt. frá n. og hefi þess vegna látið fyrirfarast að flytja sjálfur brtt. um hin sömu atriði. Nú vil ég spyrja, hvort ekki sé von á neinum slíkum, og biðja hæstv. forseta að taka málið út af dagskrá, svo að svigrúm fáist fyrir mig að flytja brtt., ef n. er horfin frá að gera það.