01.06.1933
Efri deild: 86. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2481 í B-deild Alþingistíðinda. (4039)

127. mál, varnarþing og stefnufrest í víxilmálum

Frsm. (Jón Þorláksson):

N. mælir með því, að frv. þetta nái fram að ganga, og vísar þar að öðru leyti til grg., sem fylgir upphaflega frv. á þskj. 233. Það fer í raun og veru ekki fram á annað en samræmingu á reglum um það, hvar megi höfða og sækja víxilmál.