10.05.1933
Efri deild: 68. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 600 í B-deild Alþingistíðinda. (422)

2. mál, fjáraukalög 1931

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Fyrir hönd fjhn. hefi ég það eitt að segja, að n. leggur til, að frv. verði samþ. N. skírskotar til nál. fjhn. Nd., en í henni átti sæti einn endurskoðandi LR., og koma þar fram heimildarveitingar fyrir þessu. Að öðru leyti er ekki ástæða til þess að orðlengja um málið.