29.03.1933
Neðri deild: 39. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í C-deild Alþingistíðinda. (4685)

132. mál, bæjarútgerð Reykjavíkur

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Ég þarf ekki miklu við að bæta. Ef hv. 4. þm. Reykv. er fullviss um vilja bæjarbúa í þessu, þá vil ég leggja til, að hann verði með í því að samþ. þetta frv., og ég vil bæta því við, að það yrði að því áskildu, að meiri hl. kjósenda við almenna atkvgr. í Reykjavík samþ. frv.