01.03.1933
Efri deild: 13. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í C-deild Alþingistíðinda. (4822)

47. mál, sjórnarskrárbreytingu

Jónas Jónsson [óyfirl.]:

Ég ætla aðeins að gera örstutta aths. út af ræðu hv. 1. landsk. í sambandi við stjskrfrv. það, sem útbýtt var hér í d. Ég hefi ekki verið við þá samninga, sem hann minntist á. Ég hygg, eftir því sem fram er komið, að það liggi þannig í því, að hann hafi verið í þessum samningum, því að það lítur út fyrir, að samningunum sé fullnægt við hann og hans aðstandendur með því að bera frv. þetta fram, en að það þurfi ekki að standa við það að samþ. það. Finnst mér, að hv. 1. landsk. verði að taka því eins og er.