10.04.1933
Neðri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 846 í B-deild Alþingistíðinda. (840)

25. mál, stjórn vitamála og um vitabyggingar

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég vil geta þess um brtt. hv. þm. Seyðf., að n. ræddi hana lítilsháttar og kom ekki nein andstaða fram hjá n. gegn henni. N. tók þó ekki ákvörðun með henni, en hugsaði sér að bíða átekta og sjá, hvort fleiri brtt. kæmu frá einstökum þm., og taka frekari afstöðu til þeirra fyrir 3. umr. Vil ég því mælast til þess, að hv. þm. Seyðf. taki þessa brtt. aftur til 3. umr.