18.12.1934
Sameinað þing: 24. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2834 í B-deild Alþingistíðinda. (131)

Afgreiðsla þingmála

Garðar Þorsteinsson:

Það er langt síðan ég bar fram till. um rannsókn út af tjóni einstakra manna í ofviðrinu 27. okt. og till. um rekstrarlán til smáútgerðarinnar. Þetta eru engin flokksmál, og ég veit ekki betur en að allur þingheimur muni yfirleitt vera hlynntur því, að þessar till. verði samþ., en það er nauðsynlegt, að þær verði samþ. á þessu þingi. Ég vil því mælast til þess, að hæstv. forseti taki þessar till. á dagskrá sem fyrst.