15.10.1934
Neðri deild: 10. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (1476)

35. mál, Kreppulánasjóður

Héðinn Valdimarsson:

Ég vil aðeins taka undir þann fyrirvara, sem hv. þm. A.-Húnv. gat um. Ég er líka á þeirri skoðun, að ekki eigi að setja bráðabirgðal., nema brýn og óhjákvæmileg nauðsyn sé fyrir hendi, og hún var ekki fyrir hendi í þessu tilfelli, auk þess sem það er mjög óviðkunnanlegt, að á skuldabréfum Kreppulánasjóðs skuli þurfa að vitna í bráðabirgðal.