08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1175 í B-deild Alþingistíðinda. (1563)

19. mál, varnir gegn því að verða barnshafandi og fóstureyðingar

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Mér virðist ástæðulaust að vísa máli þessu til n. Þær einu breyt. voru á frv. gerðar í Ed., að 10. frvgr. var felld niður. Varð það með góðu samkomulagi milli allra flokka í þeirri hv. d., að leggja sérstakt frv. um efni þessarar frvgr. fyrir næsta þing.