10.12.1934
Sameinað þing: 22. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2843 í B-deild Alþingistíðinda. (179)
Kosningar
Forseti (JBald):
Þá er umr. lokið, og verður gengið til kosningar. Mér hafa borizt 4 listar, er ég auðkenni með A, B, C og D. Á listunum eru þessi nöfn: Á A-lista Jón Baldvinsson, á B-lista Jónas Jónsson og Einar Árnason, á C-lista Tryggvi Þórhallsson, og á D-lista Magnús Guðmundsson og Magnús Jónsson.