29.11.1934
Sameinað þing: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í B-deild Alþingistíðinda. (270)

1. mál, fjárlög 1935

Guðbrandur Ísberg:

Ég á hér á þskj. 602 nokkrar brtt. við fjárlfrv. Við fyrri hl. þess, sem nú er til umr., á ég aðeins eina brtt., sem er rómverskir tveir, við 12. frvgr. Ég hefi af sérstökum ástæðum ákveðið að taka þessa brtt. aftur til 3. umr.

Hinar aðrar brtt., sem ég hefi gert, eru undir síðari kafla fjárlfrv., og hlýðir því ekki að ræða þær nú.