06.12.1934
Neðri deild: 52. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2061 í B-deild Alþingistíðinda. (3148)

130. mál, vátryggingar opinna vélbáta

Jóhann Jósefsson:

Þessu máli hefir algerlega verið umturnað í Ed., og þarf sjútvn. því að fá tóm til að athuga það. Hefir mér verið falið að gagnrýna breyt. þær, sem á því hafa verið gerðar, og reyna að kippa því í lag. En ég hefi ekki haft tíma til þess að koma því í verk. Ég vil því mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá.

Forseti tók málið af dagskrá.