08.12.1934
Efri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2613 í B-deild Alþingistíðinda. (3521)

156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

Varaforseti (SÁÓ):

Mér hefir borizt svo hljóðandi skrifl. brtt., frá hv. 1. þm. Eyf., við brtt. allshn. á þskj. 717:

Fyrir: „né til minni háttar sýslunarmanna, enda sé starfið ekki aðalstarf þeirra“, komi: né heldur til þeirra sýslunarmanna, er ekki hafa sýslanina að aðalstarfi.

Þessi brtt. er skrifl. og of seint fram komin, og þarf því tvennskonar afbrigði til þess að hún megi koma fyrir, og vil ég leita þeirra afbrigða.