10.11.1934
Neðri deild: 33. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í C-deild Alþingistíðinda. (4083)

50. mál, ráðstafanir vegna fjárkreppunnar

Bjarni Ásgeirsson:

Ég get glatt hv. þm. V.-Húnv. með þeim upplýsingum, að málinu líður ágætlega hjá landbn. Annars er ástæðan til þess, að það er ekki komið fram, sú, eins og hv. þm. er kunnugt um, að fyrir landbn. liggja mjög víðtækar till. um almenna vaxtalækkun á lánum landbúnaðarins, sem fljótlega munu verða afgr. frá n. í heild. Okkur virtist ekki ástæða til að taka einn lið út úr og afgr. hann sérstaklega. heldur munum við afgr. frv. hv. þm. V.-Húnv. í sambandi við hin önnur samkynja mál, sem n. hefir til meðferðar, og vænti ég, að þau komi fram næstu daga. Vona ég, að hv. þm. V.-Húnv. verði þolinmóður þangað til.