13.11.1934
Neðri deild: 35. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í C-deild Alþingistíðinda. (4482)

59. mál, fiskiráð

Forseti (JörB):

Það er ekki hægt að neita því, að það er nokkuð langt síðan þetta frv. var borið fram og því eðlilegt, að flm. óski eftir, að það komi til umr. En eftir þeim málavöxtum, sem nú hefir verið lýst, teldi ég hyggilegt, að þm. kynntu sér nýja frv. áður en þetta kemur til umr., ef samkomulag kynni að takast. Ég vil því beina því til hv. flm., hvort ekki gæti fengizt samkomulag um að fresta þessu máli.