26.10.1934
Neðri deild: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 502 í B-deild Alþingistíðinda. (467)
10. mál, bráðabirgðaverðtollur
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Með frv. þessu er farið fram á, að lögin um bráðabirgðaverðtoll frá 1933 verði framlengd til ársloka 1935, því að ríkissjóður má ekki missa þann tekjuauka, sem þau gefa.