10.10.1934
Neðri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í B-deild Alþingistíðinda. (490)

32. mál, útflutningur á kjöti

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Það er hið sama að segja um þetta frv. og bráðabirgðalögin frá 28. júní síðastl. eins og frv. um tilbúinn áburð, að það er framlenging á 1. frá 19. júní 1933, sem sett voru vegna útflutnings á kjöti til Noregs og Englands. Þetta frv., ef að lögum verður, á að gilda til 1. júlí 1935, og setti fyrrv. atvmrh. bráðabirgðalög sama efnis 28. júní síðastl.

Að lokinni þessari umr. óska ég, að málinu verði vísað til hv. landbn.