17.10.1934
Neðri deild: 12. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (660)

23. mál, tilbúinn áburður

Ólafur Thors:

Ég vil, að þingtíðindin geymi það, að þessi eini maður úr Sjálfstfl., sem hæstv. forseti var svona góður við, hv. 1. þm. Rang., sem er einhver með vinsælustu mönnum þessa lands, varð 63 ára í gær, og hefir þess vegna ekki komizt að heiman þessa daga fyrir vinum, sem eru að óska honum til hamingju. Ég vildi nota þetta tækifæri til að mæla fyrir minni hans hér í d. í kvöld. Fundarhlé